##body_top##
##content_above##

Um Snorrann

Um Snorrann   

Hvur er hann Snorri spyrjið þið öll í forundran!

Nú hann Snorri  (eða "ÉG", eins og ég kalla mig stundum...) er drengur góður sem dvelur þessa daganna í hinum merka bæ Ísafirði ásamt fullt af öðru fólki sem býr þar líka, enda væri lítið gaman að vera einn í heilum bæ.
Það væri heldur ómerkilegur bær líka, ef einvörðungu einn maður byggi þar.
Þó hann væri nú reyndar nokkuð vel mannaður ef eingöngu ég byggi þar, þar sem ég er náttúrulega bara frábær.

En nei, það býr fullt af öðru fólki á Ísafirði, suma þekki ég og suma ekki.
Sumir eru fávitar og sumir ekki.
Sumir kunna að telja hratt afturábak á sama tíma og þeir stimpla inn sms og fá sér bollu með rjóma.
Ég er ekki einn af þeim.

Ég er hinsvegar einn af þeim sem kann þá merku list að drekka bjór á sama tíma og...
...margir aðrir.
Oft og iðulega í sama húsi meira að segja.
Enda er það oftast gaman.

Nú svo hef ég smá gaman af því að horfa á gott bíó, gott sjónvarp, spila góða tölvuleiki, tölta um fjöll og fyrnindi (eins og skrattinn úr sauðaleggnum, ég veit það) og liggja í sófanum mínum með köttinn minn í fanginu og slappa af.

Einnig hef ég virkilega gaman af því að tala.
Hef til dæmis mikið yndi af því að fara með uppistand og keppa í ræðukeppnum.

Annað áhugamál mitt er að borða mikið og drekka mjög mikið af coke.
Telst mjög fær við þá iðju líka...

Gaman að segja frá því!

##content_below##
##body_bottom##